
Uppsetning forrita
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri
tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er eða fá þær sendar
sem margmiðlunarskilaboð, sem tölvupóstsviðhengi eða
nota aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.
Hægt er að nota Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite
til að setja upp forrit í tækinu.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Forritastjórnun
.
Uppsetningarskrárnar eru staðsettar í möppunni
Uppsetn.skrár og uppsettu forritin í möppunni Uppsett forrit.
Tákn sýna eftirfarandi:
SIS- eða SISX-forrit
Java-forrit
Græjur
Forrit sett upp á minniskortinu
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og
annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með
Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java
Verified™.
Áður en forritið er sett skaltu athuga eftirfarandi:
● Skoðaðu gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða
framleiðanda forritsins. Veldu
Valkostir
>
Skoða
upplýsingar
.
● Skoðaðu upplýsingar um öryggisvottorð forritsins. Veldu
Upplýsingar:
>
Vottorð:
>
Skoða upplýsingar
. Hægt
er að stjórna notkun stafrænna vottorða í
Vottorðastjórnun.
Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða
endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu aðeins
endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort upphaflega
uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða öryggisafrit af öllum
hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að
endurheimta upphaflega forritið skaltu fyrst fjarlægja forritið
og síðan setja það upp aftur úr upphaflegu
uppsetningarskránni eða öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef
skrána vantar getur tækið beðið þig um að hlaða henni niður.
Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur fyrir forritið biður
tækið þig um að velja aðgangsstað.
Setja upp forrit
1. Leitaðu að uppsetningarskránni í möppunni fyrir
uppsetningarskrár í Forritastjórnun eða leitaðu að þeim í
Skráarstjóra eða innhólfi þínu í Skilaboðum.
2. Í Forritastjóra velurðu forritið sem þú vilt setja upp og
Valkostir
>
Setja upp
. Í öðrum forritum velurðu
uppsetningarskrána til að hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um
stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án
rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið
Önnur forrit
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
89

viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið
ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.
Opna uppsett forrit — Veltu forritið í valmyndinni. Ef forritið
er ekki með sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í
möppunni Uppsett forrit á aðalvalmyndinni.
Sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið uppsettir eða
fjarlægðir — Veldu
Valkostir
>
Skoða notkunarskrá
.
Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í
einu. Notkun fleiri en eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif
á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að það virki
ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir
að forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu minniskorti.
Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því að ekki sé hægt
að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia
Ovi Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og
setja afritið á samhæfa tölvu. Að því loknu skaltu nota
Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr minni
tækisins. Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í
skilaboðum skal eyða skilaboðunum úr innhólfinu.