Nokia 5800 XpressMusic - Aukin ending rafhlöðu

background image

Aukin ending rafhlöðu

Ýmsar aðgerðir tækisins ganga á rafhlöðu símans og draga

úr endingu hennar. Til að spara rafhlöðuna skaltu hafa

eftirfarandi í huga:
● Eiginleikar sem nota Bluetooth-tengingu eða leyfa slíkum

eiginleikum að keyra í bakgrunni meðan aðrir eiginleikar

eru í notkun eyða meira af rafhlöðunni. Slökktu á

Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.

● Eiginleikar sem nota þráðlaus staðarnet (WLAN) eða leyfa

slíkum eiginleikum að keyra í bakgrunni meðan aðrir

eiginleikar eru í notkun eyða meira af rafhlöðunni. Slökkt

er á þráðlausum staðarnetum í Nokia símanum þegar ekki

er verið að tengjast, ekki er tengt við aðgangsstað eða

þegar ekki er leitað að netkerfum. Til að spara rafhlöðuna

enn frekar er hægt að stilla tækið þannig að það leiti ekki

eða leiti sjaldnar að tiltækum netkerfum í bakgrunninum.

● Ef þú hefur valið

Pakkagagnatenging

>

Ef samband

næst

í tengistillingunum, og engin pakkagagnatenging

(GPRS) er til staðar, reynir tækið reglulega að koma á

pakkagagnatengingu. Til að lengja endingartíma

rafhlöðunnar velurðu

Pakkagagnatenging

>

Ef með

þarf

.

● Kortaforritið hleður niður nýjum kortaupplýsingum þegar

þú ferð á ný svæði á kortinu en það eykur á orkuþörfina.

Hægt er að koma í veg fyrir sjálfvirkt niðurhal á nýjum

kortum.

● Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur á þínu

svæði verður tækið reglulega að leita að tiltækum

símkerfum. Þetta eykur orkuþörfina.
Ef símkerfið er stillt á tvöfalda stillingu í

símkerfisstillingum leitar tækið að UMTS-símkerfinu. Til að

stilla tækið þannig að það noti eingöngu GSM kerfið

velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

Símkerfi

>

Símkerfi

>

GSM

.

● Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í skjástillingunum er

hægt að velja tímann sem á að líða þar til slökkt er á

baklýsingunni, og stilla ljósnemann sem er notaður til að

stilla birtustig skjásins í samræmi við birtuskilyrði hverju

sinni. Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Sími

>

Skjár

>

Tímamörk ljósa

eða

Birtuskynjari

.

● Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku.

Til að loka forriti sem þú notar ekki ýtirðu á

valmyndartakkann, velur forrit og velur

Hætta

. Þessi

möguleiki er ekki fyrir hendi í öllum forritum.