Nokia 5800 XpressMusic - Myndsímtali komið á

background image

Myndsímtali komið á

Í myndsímtali (sérþjónusta) geta bæði þú og viðmælandi

þinn séð rauntíma hreyfimynd af hvor öðrum. Hreyfimyndin

sem myndavélin tekur birtist hjá viðmælandanum.
Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að vera

innan þjónustusvæðis 3G-símkerfis. Netþjónustuveitan þín

Hringt úr tækinu

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

28

background image

gefur upplýsingar um framboð, verð og áskrift að

myndsímtölum.
Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila í einu.

Hægt er að koma á myndsímtali við samhæfan farsíma eða

ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma á myndsímtölum

þegar annað símtal, myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.

Vísar

Tækinu berst ekki hreyfimynd (annaðhvort sendir

viðtakandinn ekki hreyfimyndina eða símkerfið sendir hana

ekki).

Þú hefur hafnað hreyfimyndasendingu úr tækinu þínu.

Til að senda kyrrmynd í staðinn velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Hringistillingar

>

Símtöl

>

Mynd í

myndsímtali

.

Jafnvel þótt þú hafnir hreyfimyndasendingu í myndsímtali

verður tekið gjald fyrir símtalið sem myndsímtal. Hafðu

samband við þjónustuveituna til að fá upplýsingar um

kostnað.
1. Á heimaskjánum velurðu til að opna númeravalið og

slærð inn símanúmerið.

2. Veldu

Valkostir

>

Hringja

>

Myndsímtal

.

Fremri myndavélin er sjálfgefið valin í myndsímtali. Það

getur tekið smástund að koma á myndsímtali. Ef ekki

tekst að koma á tengingu (t.d. ef símkerfið styður ekki

myndsímtöl eða móttökutækið er ekki samhæft) er spurt

hvort þú viljir hringja venjulegt símtal eða senda

textaskilaboð í staðinn.

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær

hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.

Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (sýnd með

) og þá heyrir þú aðeins rödd hans og sérð að auki

kyrrmynd eða gráan bakgrunn.

Myndsímtali slitið — Ýttu á hætta-takkann.