Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda krefst 3G-tengingar. Ekki er hægt að
nota samnýtingu hreyfimynda nema með 3G-símkerfi. Nánari
upplýsingar um þjónustuna, tiltæk 3G-símkerfi og gjöld fyrir
notkun þjónustunnar fást hjá þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota samnýtingu hreyfimynda þarftu að
gera eftirfarandi:
● Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir
tengingar á milli einstaklinga.
● Þú hefur virka 3G-tengingu og sért innan þjónustusvæðis
3G-símkerfis. Ef þú ferð út fyrir 3G-þjónustusvæði meðan
samnýting fer fram, þá rofnar hún en símtalið heldur
áfram.
● Bæði sendandinn og viðtakandinn eru skráðir á 3G-
símkerfið. Ef þú býður einhverjum í samnýtingu og tæki
viðtakandans er ekki tengt við 3G-símkerfi, eða þá að
samnýting eða P2P hefur ekki verið sett upp í því, fær
viðtakandinn ekki boðið. Þú færð villuboð um að
viðtakandinn geti ekki þegið boðið.