Stillingar samnýtingar
Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og 3G-
tengistillingar.
Hringt úr tækinu
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
30
Tenging á milli einstaklinga (P2P) er einnig þekkt undir
heitinu SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-
sniðstillingar verða að vera settar upp í tækinu til að hægt sé
að nota samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá
þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu.
Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða gefið þér upp
nauðsynlegar stillingar.
Bæta SIP-vistfangi við tengilið
1. Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
.
2. Veldu tengiliðinn eða búðu til nýjan tengilið.
3. Veldu
Valkostir
>
Breyta
.
4. Veldu
Valkostir
>
Bæta við upplýsingum
>
Samnýta
hreyfimynd
.
5. Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang
(hægt er að nota IP-tölu í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað
símanúmer hans, ásamt landsnúmerinu, til að samnýta
hreyfimynd (ef netþjónustuveitan styður það).
Setja upp 3G tenginguna þína — Hafðu samband við
þjónustuveituna þína til að fá samning um notkun 3G-
símkerfis.
Gakktu úr skugga um að 3G-aðgangsstaðastillingar tækisins
séu réttar. Nánari upplýsingar um stillingarnar fást hjá
þjónustuveitunni.