Nokia 5800 XpressMusic - Um staðsetningaraðferðir

background image

Um staðsetningaraðferðir

Maps sýnir hvar þú ert staddur á kortinu með GPS, A-GPS,

þráðlausu staðarneti eða staðsetningu byggðri á auðkenni

endurvarpa.
GPS (Global Positioning System) er leiðsögukerfi sem byggir

á móttöku staðsetningarupplýsinga frá gervitunglum til að

reikna út staðsetningu þína. A-GPS (Assisted GPS) er

sérþjónusta sem sendir þér GPS-gögn, sem eykur hraða og

nákvæmni staðsetningarinnar.
Staðsetning með þráðlausu staðarneti (WLAN) eykur

nákvæmni staðsetningar þegar GPS-merki nást ekki,

sérstaklega ef þú ert innandyra eða milli hárra bygginga.
Með staðsetningu byggðri á auðkennum endurvarpa er

staðan ákvörðuð gegnum loftnetsturninn sem tækið er tengt

við eins og er.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta skipti er beðið um að þú

tilgreinir internetaðgangsstaðinn til að hlaða niður

kortaupplýsingum, nota A-GPS eða tengjast þráðlausu

staðarneti.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af

Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni þess og

viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða fyrir

áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru

af Bandaríkjastjórn og kann að breytast í samræmi við stefnu

varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt GPS og

alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði

gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning,

byggingar, náttúrulegar hindranir auk veðurskilyrða kunna

að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Verið getur að

Kort

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

64

background image

GPS-merki náist ekki inni í byggingum eða

neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir áhrifum frá

efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar

og aldrei ætti að treysta eingöngu á staðsetningargögn frá

GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu eða

leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og

sléttunarvillur eru mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á

móttöku og gæðum GPS-merkja.

Til athugunar: Í Frakklandi er aðeins heimilt að nota

þráðlaust staðarnet innanhúss.