Nokia 5800 XpressMusic - Ný leit hafin

background image

Ný leit hafin

Veldu

Valmynd

>

Internet

>

Leit

.

Til að leita að efni í tækinu skaltu slá inn leitarorð í

leitarreitinn eða skoða efnisflokkana. Þegar þú slærð inn

leitarorðin er niðurstöðunum raðað í flokka. Niðurstöður sem

síðast voru opnaðar birtast efst á listanum ef þær samræmast

leitarorðunum.
Til að leita að vefsíðum á netinu velurðu

Leita á internetinu

og leitarþjónustu og slærð svo leitarorðin inn í leitarreitinn.

Leitarþjónustan sem þú valdir verður þá framvegis sjálfgefin

þjónustuveita við leit á netinu.

Ef sjálfgefin leitarþjónusta er þegar til staðar skaltu velja

hana til að hefja leit eða velja

Fleiri leitarþjónustur

ef þú

vilt nota aðra leitarþjónustu.
Til að skipta um sjálfgefna leitarþjónustu velurðu

Valkostir

>

Stillingar

>

Leitarþjónustur

.

Til að breyta lands- eða svæðisstillingum og finna fleiri

leitarþjónustur velurðu

Valkostir

>

Stillingar

>

Land eða

svæði

.

19. Ovi-verslun

Um Ovi-verslunina

Í Ovi-versluninni geturðu hlaðið niður leikjum, forritum,

myndskeiðum, myndum og hringitónum í tækið þitt. Sumir

hlutir kosta ekki neitt; aðra þarftu að kaupa og greiða fyrir

með kreditkorti eða láta skuldfæra á símareikninginn. Það fer

eftir landi og þjónustuveitu hvaða greiðslumáta er boðið upp

á. Ovi-verslunin býður upp á efni sem er samhæft við tækið

þitt og hæfir bæði smekk þínum og staðsetningu.

20. Önnur forrit

Klukka

Stilling tíma og dagsetningar

Veldu

Valmynd

>

Forrit

>

Klukka

.

Veldu

Valkostir

>

Stillingar

og svo úr eftirfarandi:

Tími

— Stilla tímann.

Dagsetning

— Stilla dagsetningu.

Sjálfvirk tímauppfærsla

— Láta símkerfið uppfæra

sjálfvirkt tímann, dagsetninguna og tímabelti klukkunnar

(sérþjónusta).

Vekjaraklukka

Veldu

Valmynd

>

Forrit

>

Klukka

.