
Myndastillingar:
— Veldu litatón.
— Til að stilla ljósgjafann. Veldu birtuskilyrðin. Þetta gerir
myndavélinni kleift að endurskapa liti af meiri nákvæmni.
— Til að stilla lýsingu (aðeins fyrir kyrrmyndir). Ef þú ert
að taka mynd af dökkum hlut með mjög ljósum bakgrunni,
t.d. snjó, skaltu stilla lýsinguna á +1 eða +2 vegna birtunnar
í bakgrunninum. Stilltu á -1 eða -2 ef um er að ræða ljósan
hlut með dökkum bakgrunni.
— Til að stilla ljósnæmi (aðeins fyrir kyrrmyndir). Auka
skal ljósnæmi þegar birta er lítil til að myndirnar verði ekki
of dökkar og óskýrar. Þegar ljósnæmi er aukið kann myndsuð
einnig að aukast.
— Til að stilla birtuskil (aðeins fyrir kyrrmyndir). Til að
stilla muninn á ljósustu og dekkstu hlutum myndarinnar.
— Stilltu skerpu (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar.
Myndatökustillingarnar gilda fyrir hverja einstaka
myndatöku. Ef skipt er úr einni stöðu í aðra færast
stillingarnar ekki í tilgreint horf.
Ef ný umhverfisstilling er valin kemur hún í stað
myndatökustillinganna. Hægt er að breyta
myndatökustillingunum eftir að umhverfi hefur verið valið,
ef þörf krefur.
Það getur tekið lengri tíma að vista myndir ef stillingum fyrir
stækkun, lýsingu eða liti er breytt.