Myndataka
Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú tekur mynd:
● Nota skal báðar hendur til að halda myndavélinni kyrri.
● Myndgæðin minnka þegar aðdráttur er notaður.
● Myndavélin fer í orkusparnaðarstöðu ef hún er ekki notuð
í u.þ.b. eina mínútu.
● Halda skal öruggri fjarlægð þegar flassið er notað. Ekki má
nota flassið á fólk eða dýr sem eru mjög nálægt. Ekki má
hylja flassið þegar mynd er tekin.
1. Til að skipta úr hreyfimyndastillingu yfir í
kyrrmyndastillingu, ef þörf krefur, velurðu >
.
2. Ýttu á myndatökutakkann. Hreyfðu ekki tækið fyrr en
myndin hefur verið vistuð og og birtist á skjánum.
Myndataka með aukamyndavélinni
1. Veldu
Valkostir
>
Nota aftari myndavél
.
Myndavél
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
55
2. Til að taka mynd skaltu velja
. Hreyfðu ekki tækið fyrr
en myndin hefur verið vistuð og og birtist á skjánum.
Aðdráttur minnkaður eða aukinn þegar mynd er tekin —
Notaðu aðdráttarstikuna.
Kveikt á myndavélinni í bakgrunni og önnur forrit
notuð — Ýttu á valmyndartakkann. Til að nota myndavélina
aftur skaltu halda myndatökutakkanum niðri.