Upplýsingar um staðsetningu
Hægt er að bæta upplýsingum um hvar mynd er tekin
sjálfkrafa við aðrar upplýsingar um hana.
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Myndavél
.
Bættu upplýsingum um tökustað við allar myndir —
Veldu
Valkostir
>
Stillingar
>
Sýna GPS-upplýsingar
>
Kveikt
. Aðeins er hægt að fá upplýsingar um tökustað mynda
sem teknar eru með aðalmyndavélinni.
Það getur tekið nokkrar mínútur að fá staðsetningarhnitin.
Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir, auk
veðurskilyrða, kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-
merkja. Ef skrá sem inniheldur upplýsingar um staðsetningu
er samnýtt eru einnig staðsetningarupplýsingarnar
samnýttar og þriðji aðili sem sér skrána kann að sjá
staðsetninguna. Tækið þarf netþjónustu til að að geta fengið
upplýsingar um staðsetningu.
Upplýsingar um staðsetningu:
●
— Staðsetningarupplýsingar eru ekki tiltækar. GPS er
áfram virkt í bakgrunninum í nokkrar mínútur. Ef tenging
við gervihnött kemst á og vísirinn breytist í á þessum
mínútum eru allar myndir og hreyfimyndir sem þá eru
teknar merktar samkvæmt upplýsingum GPS um
staðsetningu.
● — Upplýsingar um staðsetningu eru tiltækar.
Upplýsingum um staðsetningu er bætt við aðrar
skráarupplýsingar.