Nokia 5800 XpressMusic - Myndskeiðin mín

background image

Myndskeiðin mín

Myndskeiðin mín er geymslustaður fyrir öll myndskeið í

myndveituforritinu. Hægt er að flokka myndskeið sem hefur

verið hlaðið niður og myndskeið sem tekin hafa verið með

myndavél tækisins, í sérstökum skjágluggum.

1. Til að opna möppu og skila myndskeið velurðu möppuna.

Hægt er að stjórna spilaranum með því að smella á

stýritakkana á skjánum meðan myndskeið er spilað.

2. Hljóðstyrknum er breytt með því að ýta á

hljóðstyrkstakkann.

Veldu

Valkostir

og svo úr eftirfarandi:

Halda niðurhali áfram

— Halda niðurhali áfram sem hlé

hefur verið gert á eða sem hefur mistekist.

Hætta við niðurhal

— Hætta við niðurhal.

Um hreyfimynd

— Skoða upplýsingar um myndskeið.

Leita

— Leita að myndskeiði. Sláðu inn leitarorð sem

samsvarar skráarheitinu.

Minnisstaða

— Til að sjá hversu mikið minni er laust og

hversu mikið er í notkun.

Raða eftir

— Raða myndskeiðum. Veldu viðeigandi flokk.

Færa og afrita

— Færa eða afrita myndskeið. Veldu

Afrita

eða

Færa

og staðsetningu.