Nokia 5800 XpressMusic - Aðalskjár Skilaboða

background image

Búa til skilaboð — Veldu

Ný skilaboð

.

Ábending: Til að komast hjá því að endurrita skilaboð

sem oft eru send skaltu nota textana í möppunni

Sniðmát í Möppurnar mínar. Einnig geturðu búið til og

vistað þín eigin sniðmát.

Skilaboð inniheldur eftirfarandi möppur:

Innhólf

— Móttekin skilaboð önnur en tölvupóstur og

skilaboð frá endurvarpa.

Mínar möppur

— Raðaðu skilaboðum í möppur.

Pósthólf

— Hægt er að tengjast við ytra pósthólf til

að sækja nýjan tölvupóst og skoða eldri tölvupóst án

tengingar.

Drög

— Drög að ósendum skilaboðum.

Sendir hlutir

— Síðustu skilaboðin sem voru send,

fyrir utan þau sem voru send um Bluetooth, eru vistuð hér.

Þú getur tilgreint fjölda skilaboða sem hægt er að vista í

þessari möppu.

Úthólf

— Skilaboð sem bíða þess að verða send eru

vistuð tímabundið í úthólfinu, t.d. þegar tækið er utan

þjónustusvæðis.

Skilatilkynningar

— Biðja símkerfið um að senda

skilatilkynningar fyrir send texta- og

margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta).