Nokia 5800 XpressMusic - Mail for Exchange

background image

Mail for Exchange

Með Mail for Exchange geturðu fengið vinnupóstinn þinn

sendan í tækið. Þú getur lesið og svarað tölvupóstinum,

skoðað og breytt samhæfum viðhengjum, séð

dagbókarupplýsingar, móttekið og svarað fundarboðum,

tímasett fundi og skoðað, sett inn og breytt upplýsingum um

tengiliði.

ActiveSync
Notkun á Mail for Exchange takmarkast við samkeyrslu PIM-

upplýsinga í lofti milli Nokia-tækisins og viðurkennds

Microsoft Exchange þjóns.
Mail for Exchange er einungis hægt að setja upp ef fyrirtæki

þitt er með Microsoft Exchange Server. Auk þess verður

kerfisstjóri fyrirtækisins að virkja Mail for Exchange fyrir

reikninginn þinn.
Áður en hafist er handa við uppsetningu á Mail for Exchange

skaltu tryggja að þú sért með eftirfarandi:
● Auðkenni fyrir fyrirtækistölvupóst
● Notandanafn þitt á fyrirtækisnetinu
● Lykilorð þitt á fyrirtækisnetinu
● Lénsheiti netsins (hafðu samband við tölvudeild

fyrirtækisins)

● Miðlaraheiti þitt fyrir Mail for Exchange (hafðu samband

við tölvudeild fyrirtækisins)

Þú þarft hugsanlega að færa inn aðrar upplýsingar til viðbótar

þeim sem áður er lýst, allt eftir uppsetningu Mail for

Exchange-miðlara fyrirtækisins. Ef þú veist ekki réttar

upplýsingar skaltu hafa samband við tölvudeild fyrirtækisins.
Hugsanlega er nauðsynlegt að nota læsingarkóðann með

Mail for Exchange. Sjálfgefinn læsingarkóði tækisins er

12345, en hugsanlega hefur tæknistjóri fyrirtækisins breytt

honum fyrir þig.
Þú getur opnað og breytt sniði og stillingum Mail for

Exchange í stillingum Skilaboða.