Nokia 5800 XpressMusic - A-GPS (Assisted GPS)

background image

A-GPS (Assisted GPS)

Tækið styður einnig GPS með leiðsögn (A-GPS).
A-GPS er sérþjónusta.
Assisted GPS (A-GPS) er notað til að fá hjálpargögn með

pakkagagnatengingu og hjálpar við að reikna út hnit

staðsetningar þinnar þegar tækið tekur við merkjum frá

gervitunglum.
Þegar þú kveikir á A-GPS tekur tækið á móti

gervihnattaupplýsingar frá hjálpargagnamiðlara um

farsímakerfið. Tækið getur verið fljótara að ná GPS-

staðsetningu ef hjálpargögn eru notuð.
Tækið er forstillt þannig að það noti Nokia A-GPS þjónustuna,

ef engar sérstakar A-GPS stillingar frá þjónustuveitunni eru í

boði. Hjálpargögnin eru aðeins sótt frá Nokia A-GPS

þjónustumiðlaranum þegar þörf krefur.

Staðsetning (GPS)

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

59

background image

Það verður að vera internetaðgangsstaður í tækinu til að

hægt sé að sækja hjálpargögn frá Nokia A-GPS þjónustunni

um pakkagagnatengingu. Til að tilgreina aðgangsstað fyrir

A-GPS velurðu

Valmynd

>

Forrit

>

Staðsetning

og

Staðarákvörðun

>

Miðlari fyrir staðarákv.

>

Aðgangsstaður

. Aðgangsstaður fyrir þráðlaust staðarnet

nýtist ekki í þessari þjónustu.Aðeins er hægt að nota

internetaðgangsstað fyrir pakkagögn. Tækið biður um

internetaðgangsstað þegar GPS er notað í fyrsta skipti.