Góð ráð við að koma á GPS-tengingu
Athugaðu stöðu merkja frá gervitungli — Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Staðsetning
og
GPS-gögn
>
Valkostir
>
Staða gervitungla
.
Ef tækið hefur fundið
gervitungl birtist stika
fyrir hvert þeirra á
upplýsingaskjá
gervitungla. Því lengri
sem stikan er, þeim
mun meiri er
styrkurinn. Stikan
skiptir litum þegar tækið hefur fengið nægar upplýsingar úr
merkinu frá gervitunglinu til að geta reiknað út staðsetningu
þína.
Tækið verður í upphafi að fá merki frá a.m.k. fjórum
gervitunglum til að geta reiknað út staðsetningu þína. Þegar
frumútreikningur hefur farið fram kann það að vera
mögulegt að reikna út staðsetningu þína með þremur
gervitunglum. Hins vegar er útreikningurinn nákvæmari
þegar fleiri gervitungl finnast.
Til að sjá stöðu gervihnattanna velurðu
Breyt. útliti
.
Ef ekkert merki frá gervitungli finnst skal athuga eftirfarandi:
● Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.
● Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
● Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á merkisstyrkinn.
● Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst
að gervihnattamerki berist í gegnum þær.
Gakktu úr skugga um að þú sért ekki að byrgja loftnetið með
hendinni.
Staðsetning (GPS)
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
60
Það getur tekið allt frá fáeinum sekúndum
upp í nokkrar mínútur að koma á GPS-
tengingu. Það getur tekið lengri tíma að
koma á GPS-tengingu í bíl.
GPS-móttakarinn notar orku rafhlöðunnar.
Notkun hans getur tæmt rafhlöðuna fyrr en
ella.