
Sími og SIM
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggi
>
Sími og SIM-kort
.
Veldu úr eftirfarandi:
●
Beiðni um PIN-númer
— Þegar kveikt er á þessari
stillingu er beðið um númerið í hvert skipti sem kveikt er
á tækinu. Sum SIM-kort leyfa ekki að hægt sé að gera
beiðni um PIN-númer óvirka.
●
PIN-númer
og
PIN2-númer
— Breyttu PIN og PIN2-
númeri. Þessi númer geta aðeins innihaldið tölustafi.
Forðastu að nota aðgangsnúmer sem líkist
neyðarnúmerum, t.d. 112, til að komast hjá því að hringja
óvart í neyðarnúmer. Hafðu samband við þjónustuveituna
ef þú glatar PIN- eða PIN2-númerinu þínu. Ef þú gleymir
læsingarkóðanum skaltu hafa samband við Nokia Care
þjónustuver eða þjónustuveituna þína.
Stillingar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
95

●
Læsingarkóði
— Læsingarkóðinn er notaður þegar tækið
er tekið úr lás. Breyttu læsingarkóðanum til að koma í veg
fyrir óleyfilega notkun tækisins. Forstillta númerið er
12345. Nýja númerið getur verið 4-255 stafir að lengd.
Nota má bæði bókstafi og tölustafi, og hástafi og lágstafi.
Tækið lætur þig vita ef læsingarkóðinn er ekki forsniðinn
á réttan hátt. Nýja kóðanum skal haldið leyndum og fjarri
tækinu.
●
Sjálfv. læsingartími síma
— Til að koma í veg fyrir
óleyfilega notkun er hægt að láta tækið læsa sér sjálfvirkt
eftir tiltekinn tíma. Læst tæki er ekki hægt að nota fyrr en
réttur læsingakóði hefur verið sleginn inn. Veldu
Enginn
til að slökkva á sjálfvirkri læsingu.
●
Læsa ef skipt um SIM-kort
— Stilltu tækið þannig að
beðið sé um læsingarkóða þegar óþekkt SIM-kort er sett
inn í það. Tækið heldur þá saman lista yfir þau SIM-kort
sem það viðurkennir sem kort eigandans.
●
Ytri símalæsing
— Gerðu ytri læsingu virka eða óvirka.
●
Lokaður notendahópur
— Tilgreindu hóp fólks sem þú
getur hringt í og sem getur hringt í þig (sérþjónusta).
●
Staðfesta SIM-þjónustu
— Láttu tækið birta
staðfestingarboð þegar þú notar SIM-kortsþjónustu
(sérþjónusta).