Vottorðastjórnun
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggi
>
Vottorðastjórnun
.
Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka eða öðru
vefsvæði eða fjartengdum miðlara vegna aðgerða sem fela í
sér sendingu trúnaðarupplýsinga. Einnig ætti að nota þau til
að minnka hættuna á vírusum eða öðrum skaðlegum
hugbúnaði og tryggja áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið
er niður af netinu og settur upp.
Veldu úr eftirfarandi:
●
Heimildavottorð
— Til að skoða og breyta
heimildarvottorðum.
●
Vottorð öruggra síðna
— Til að skoða og breyta
vottorðum fyrir öruggar síður.
●
Einkavottorð
— Til að skoða og breyta persónulegum
vottorðum.
●
Símavottorð
— Til að skoða og breyta tækisvottorðum.
Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð til
að staðfesta uppruna hugbúnaðar.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr
þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi fáist.
Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn
verður að vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð
svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin tilteknum tíma.
Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki
tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal
athuga hvort rétt dag- og tímasetning sé í tækinu.
Upplýsingar um vottorð skoðaðar — áreiðanleiki
kannaður
Þú getur aðeins verið viss um rétt kenni miðlara þegar búið
er að kanna undirskrift og gildistíma miðlaravottorðsins.
Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur eða ef
tækið inniheldur ekki rétt öryggisvottorð.
Stillingar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
96
Hægt er að skoða upplýsingar um vottorð með því að velja
Valkostir
>
Um vottorð
. Gildi vottorðsins er kannað og
einhver af eftirfarandi athugasemdum getur birst:
●
Vottorði ekki treyst
— Þú hefur ekki valið að láta neitt
forrit nota vottorðið.
●
Vottorð útrunnið
— Gildistími vottorðsins er liðinn.
●
Vottorð ekki enn gilt
— Gildistími vottorðsins er ekki
hafinn.
●
Vottorð skemmt
— Ekki er hægt að nota vottorðið. Hafðu
samband við útgefanda vottorðsins.
Trauststillingum breytt
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga
um að örugglega megi treysta eiganda þess og að það tilheyri
í raun eigandanum sem tilgreindur er.
Til að breyta stillingum heimildarvottorðs velurðu
Valkostir
>
Trauststillingar
. Listi, sem fer eftir vottorðinu
sem valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:
●
Symbian-uppsetning
:
Já
— Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.
●
Internet
:
Já
— Vottorðið getur sannreynt miðlara.
●
Uppsetning forrita
:
Já
— Vottorðið getur sannreynt
uppruna nýs Java-forrits.
Ef breyta á stillingunum velurðu
Valkostir
>
Breyta
trauststillingum
.