Stillingar fyrir aukabúnað
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Aukabúnaður
.
Sum tengi fyrir aukabúnað sýna hvaða tegund búnaðar er
tengd við tækið.
Veldu aukabúnað og svo úr eftirfarandi:
●
Sjálfvalið snið
— Til að velja snið sem nota skal í hvert
skipti sem tiltekinn samhæfur aukahlutur er tengdur við
tækið.
●
Sjálfvirkt svar
— Til að tækið svari símtölum sjálfkrafa
eftir 5 sekúndur. Ef hringitónninn er stilltur á
Pípa einu
sinni
eða
Án hljóðs
er slökkt á sjálfvirkri svörun.
●
Ljós
— Til að stilla hvort ljósin lýsi áfram að biðtíma
loknum.
Það fer eftir aukabúnaðinum hvaða stillingar er hægt að
velja.
TV-út stillingar
Til að breyta stillingum fyrir sjónvarpsúttak velurðu
Sjónvarp
út
og svo úr eftirfarandi:
●
Sjálfvalið snið
— Til að velja snið sem er notað í hvert
skipti sem Nokia Video-tengisnúra er tengd við tækið.
●
Skjástærð sjónvarps
— Til að velja skjáhlutfall
sjónvarpsins:
Venjuleg
eða
Breiðskjár
fyrir
breiðtjaldssjónvarp.
●
Sjónvarpskerfi
— Veldu analóg kerfið sem er samhæft
við sjónvarpið.
●
Flöktsía
— Til að bæta myndgæðin á sjónvarpsskjánum
velurðu
Kveikja
. Ekki er víst að flöktsían dragi úr flökti á
öllum sjónvarpsskjám.
Stillingar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
94