Nokia 5800 XpressMusic - Útilokanir

background image

Útilokanir

Útilokanir (sérþjónusta) gerir þér kleift að takmarka símtöl í

og úr tækinu. Þú getur t.d. takmarkað allar úthringingar á

milli landa eða innhringingar á meðan þú ert í útlöndum. Til

að breyta stillingunum þarftu lykilorð útilokana frá

þjónustuveitunni þinni.
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Hringistillingar

>

Útilokanir

.

Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo

sem útilokun, lokaður notendahópur og fast númeraval)

kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem

er forritað í tækið. Útilokun og flutningur símtala getur ekki

verið virkt samtímis.

Útilokun símtala

Veldu tiltekna útilokunaraðgerð og

Virkja

,

Slökkva

eða

Athuga stöðu

. Útilokanir gilda um öll símtöl, einnig

gagnasendingar.

Stillingar

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

99

background image

22. Úrræðaleit

Til að sjá svör við algengum spurningum um tækið, sjá

þjónustusíður fyrir vöruna á www.nokia.com/support.

Spurning: Hvert er lykilorðið mitt fyrir læsingar-,

PIN- eða PUK-númerin?

Svar: Sjálfgefinn læsingarkóði er 12345. Hafðu samband við

söluaðilann ef þú gleymir læsingarnúmerinu. Ef PIN- eða PUK-

númer gleymist eða ef ekki hefur verið tekið við slíku númeri

skal hafa samband við þjónustuveituna. Upplýsingar um

lykilorð fást hjá aðgangsstaðaþjónustu, t.d. netþjónustuveitu

eða símafyrirtæki.

Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e.

svarar ekki?

Svar: Haltu valmyndartakkanum inni. Veldu forritstáknið,

haltu því inni og veldu

Hætta

.

Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?

Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler

myndavélarlinsunnar séu hrein.

Spurning: Hvers vegna eru alltaf upplitaðir eða

skærir punktar á skjánum þegar ég kveiki á

tækinu?

Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum

skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa annaðhvort

stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla heldur

eðlilegan hlut.

Spurning: Hvers vegna getur Nokia-tækið mitt

ekki komið á GPS-tengingu?

Svar: Það getur tekið allt frá fáeinum sekúndum upp í nokkrar

mínútur að koma á GPS-tengingu. Það getur tekið lengri tíma

að koma á GPS-tengingu í bíl. Sértu innanhúss skaltu fara út

til að ná betra merki. Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.

Gættu þess að höndin sé ekki yfir GPS-loftneti tækisins. Slæm

veðurskilyrði geta einnig haft áhrif á sendistyrk. Sum

farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst að

gervihnattamerki berist í gegnum þær.

Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns

þegar ég nota Bluetooth?

Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að kveikt

sé á Bluetooth og tækin séu sýnileg. Gakktu einnig úr skugga

um að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé ekki meiri en 10

metrar (33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar hindranir á

milli þeirra.

Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-

tengingu?

Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið

tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth-

tengingunni í tækinu þínu. Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

Bluetooth

>

Bluetooth

>

Slökkt

.