
Símtalsstillingar
Símtalsstillingar
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
. Veldu
Hringistillingar
>
Símtöl
og svo úr eftirfarandi:
●
Senda mitt númer
— Veldu
Já
til að þeir sem þú hringir
í sjái símanúmerið þitt. Ef þú vilt nota stillingarnar sem
þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja
Stillt af
símkerfi
) (sérþjónusta).
●
Símtal í bið
— Láttu tækið gera þér viðvart ef hringt er í
þig á meðan þú ert að tala í símann (sérþjónusta) eða
athugaðu hvort sú aðgerð er virk.
●
Hafna símtali með skilab.
— Veldu að senda
textaskilaboð til að sá sem hringir í þig viti af hverju þú
gast ekki svarað símtalinu.
●
Texti skilaboða
— Skrifaðu stöðluð textaskilaboð sem
eru send þegar þú hafnar símtali.
●
Eigin mynd í mót. símtali
— Veldu hvort á að leyfa eða
banna að hreyfimynd sé send úr tækinu í myndsímtali.
●
Mynd í myndsímtali
— Ef tækið hefur verið stillt á að
senda ekki hreyfimynd í myndsímtölum er hægt að velja
kyrrmynd sem birtist þess í stað.
●
Sjálfvirkt endurval
— Láttu tækið gera allt að tíu tilraunir
til að hringja aftur í númer sem ekki náðist samband við.
Ýttu á hætta-takkann til að slökkva á sjálfvirka
endurvalinu.
●
Sýna lengd símtala
— Láttu tímalengd símtals birtast
meðan það fer fram.
●
Samantekt símtals
— Láttu tímalengd símtals birtast að
því loknu.
●
Hraðval
— Kveikt á hraðvali.
Stillingar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
98

●
Takkasvar
— Kveikt á takkasvari.
●
Lína í notkun
— Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins
ef SIM-kortið styður tvær símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift.
Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja og senda
textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum
línum, burtséð frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú
velur
Lína 2
en hefur ekki gerst áskrifandi að þessari
sérþjónustu geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er
valin birtist á heimaskjánum.
●
Línuskipting
— Láttu hindra að skipt sé á milli lína
(sérþjónusta) ef SIM-kortið styður það. Til að breyta
þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.