
Flýtivísar
Skipt er á milli opinna forrita með því að halda
valmyndartakkanum inni. Keyrsla forrita í bakgrunni krefst
aukinnar rafhlöðuorku og minnkar líftíma rafhlöðunnar.
Til að koma á nettengingu (sérþjónusta) heldurðu 0 inni í
númeravalinu.
Til að opna forrit sem tiltæk eru á miðlunarstikunni, svo sem
tónlistarspilar og netvafri, ýtirðu á miðlunartakkann á hvaða
skjámynd sem er.
Skipt er um snið með því að ýta á rofann og velja nýtt snið.
Til að hringja í talhólfið (sérþjónusta) heldurðu 1 inni í
númeravalinu.
Ýttu á hringitakkann á heimaskjánum til að opna lista yfir
númer sem hringt hefur verið í nýlega.
Haltu hringitakkanum inni á heimaskjánum til að nota
raddskipanir.