
Snið án tengingar
Ótengt snið gerir þér kleift að nota tækið án þess að tengjast
við farsímakerfið. Þegar ótengda sniðið er valið er hægt að
nota tækið án SIM-korts.
Virkja ótengt snið — Ýttu stutt á rofann og veldu
Án
tengingar
.
Þegar þú virkjar ótengt snið lokast tengingin við
farsímakerfið. Lokað er á allar sendingar útvarpsmerkja til og
frá tækinu til farsímakerfisins. Ef þú reynir að senda skilaboð
um farsímakerfið er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem
þau eru send síðar.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja,
svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á
tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að
hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að
hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að
skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn
lykilnúmerið.
Þegar þú hefur valið ótengda sniðið geturðu áfram notað
þráðlaust staðarnet, t.d. til þess að lesa tölvupóst eða vafra á
internetinu. Einnig er hægt að nota Bluetooth-tengingu í
ótengda sniðinu. Mundu að fara að öllum viðeigandi
öryggisreglum þegar þú kemur á þráðlausri
staðarnetstengingu eða Bluetooth-tengingu.