Nokia 5800 XpressMusic - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Rafhlaðan var hlaðin að hluta í verksmiðjunni. Ef tækið sýnir

að lítil hleðsla sé eftir skaltu gera eftirfarandi.
1. Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2. Tengdu hleðslutækið við tækið.

3. Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst

taka hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr

innstungunni.

Þú þarft ekki að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og þú getur

notað tækið á meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg

tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist

á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Ábending: Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu þegar það er ekki í notkun.

Hleðslutæki sem er í sambandi við innstungu eyðir

rafmagni þótt það sé ekki tengt við tækið.

Tækið tekið í notkun

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

12