Nokia 5800 XpressMusic - Þráðlausar staðarnetstengingar

background image

Þráðlausar staðarnetstengingar

Til að geta notað þráðlaust staðarnet þarftu að búa til

netaðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet. Notaðu

aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem krefjast tengingar við

internetið.
Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú býrð til

gagnatengingu með því að nota netaðgangsstað. Þráðlausa

staðarnetstengin er rofin þegar þú lokar gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali stendur

eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að tengjast

við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en

nokkur forrit geta hins vegar notað sama aðgangsstaðinn.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt fyrir að

tækið sé í ótengdu sniði (ef það er í boði). Mundu að fara að

öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og notar

þráðlausa staðarnetstengingu.

Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem auðkennir

tækið þitt skaltu opna númeravalið og slá inn

*#62209526#.