Nokia 5800 XpressMusic - Um þráðlaust staðarnet

background image

Um þráðlaust staðarnet

Til að geta notað þráðlaust staðarnet verður slíkt net að vera

til staðar og tækið að vera tengt þráðlausu staðarneti. Sum

þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf að fá aðgangsorð

hjá þjónustuveitunni til að geta tengst þeim.

Til athugunar: Verið getur að hömlur séu á notkun

þráðlausra staðarneta í sumum löndum. Í Frakklandi er til

dæmis aðeins heimilt að nota þráðlaust staðarnet innanhúss.

Frekari upplýsingar fást hjá yfirvöldum á staðnum.
Aðgerðir sem byggjast á þráðlausu staðarneti eða mega

keyra í bakgrunni á meðan aðrar aðgerðir eru notaðar ganga

á rafhlöðu tækisins og draga úr endingu hennar.
Tækið þitt styður eftirtalda möguleika í þráðlausu staðarneti:
● IEEE 802.11b/g og WAPI staðla
● Notkun á tíðninni 2,4 GHz
● WEP-dulkóðunarstaðalinn (Wired equivalent privacy) með

allt að 128 bita lyklum, Wi-Fi staðalinn (WPA) og 802.1x

sannvottunaraðferðir. Aðeins er hægt að nota þessa

valkosti ef símkerfið styður þá.

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum

dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar

staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni

á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án

heimildar.