Pörun tækja
Þú getur parað tækið þitt við samhæft tæki til að gera
Bluetooth-tengingar milli tækjanna hraðari. Fyrir pörun
skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1 til 16 tölustafir) og biðja
eiganda hins tækisins um að nota sama lykilorð. Tæki sem
ekki eru með notandaviðmót eru með fast lykilorð. Lykilorðið
er aðeins notað einu sinni.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Bluetooth
.
1. Opnaðu Pöruð tæki flipann.
2. Veldu
Valkostir
>
Nýtt parað tæki
. Tæki sem eru á
sendisvæðinu birtast.
3. Veldu tækið.
4. Sláðu inn lykilorðið í bæði tækin.
vísar á parað tæki á tækjaleitarskjánum.
Tengjast aukabúnaði eftir pörun — Veldu
Valkostir
>
Tengjast við hljóðtæki
. Nokkrir hljóðaukahlutir tengjast
tækinu sjálfvirkt eftir pörun.
Stilla tæki samkvæmt heimild — Veldu
Stilla sem
heimilað
. Hægt er að koma á tengingum milli þíns tækis og
heimilaðs tækis án þinnar vitundar. Notaðu þessa stillingu
fyrir þín eigin tæki, s.s. samhæft höfuðtól eða tölvu, eða tæki
þeirra sem þú treystir. táknar samþykkt tæki í skjá paraðra
tækja.
Hætta við að para tæki — Veldu
Valkostir
>
Eyða
.
Hætta við allar paranir — Veldu
Valkostir
>
Eyða öllum
.
Tengimöguleikar
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
77