Um Bluetooth-tengingar
Með Bluetooth-tækni er hægt að koma á þráðlausri tengingu
við önnur samhæf tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og
bílbúnað.
Þú getur notað tenginguna til að senda hluti frá tækinu þínu,
flytja skrár frá samhæfri pc-tölvu, og prenta skrárnar með
samhæfðum prentara.
Veldu og
Valmynd
>
StillingarTengingar
>
Bluetooth
.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til
samskipta þurfa tækin ekki að vera í beinni sjónlínu hvert við
annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan við 10 metra (33
feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á
tengingunni vegna hindrana eins og veggja eða annarra
raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR
sem styður eftirfarandi snið: advanced audio distribution,
basic imaging, device identification, dial-up networking, file
transfer, generic access, generic audio/video distribution,
generic object exchange, hands-free, headset, object push,
phone book access, serial port og SIM access. Til að tryggja
samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni
skal nota aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir
þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum
annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að tengja það við leyfð
tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans
og draga úr endingu hennar.