
Ytri SIM-stilling
Með ytri SIM-stillingu geturðu notað samhæfðan bílbúnað
sem aukabúnað. Áður en hægt er að velja ytri SIM-stillingu
verða tækin að vera pöruð saman og kveikja þarf á pöruninni
í hinu tækinu. Við pörun skal nota 16 stafa aðgangskóða og
stilla hitt tækið á leyfilegt.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Bluetooth
.
Virkja ytri SIM-ham
1. Virkja Bluetooth-tengingu. Veldu
Bluetooth
.
2. Virkja ytri SIM-stillingu í tækinu þínu. Veldu
Ytra SIM
.
3. Virkja ytri SIM-stillingu í hinu tækinu.
Þegar ytri SIM-stilling er virkjuð,
Ytra SIM
birtist á heimaskjá.
Tenging við þráðlaust netkerfi er lokuð og þú getur ekki
notað SIM-korta þjónustur eða möguleika sem krefjast
tengingar við farsímaskerfi.
Þegar tækið þitt er í ytri SIM-stillingarham geturðu aðeins
hringt eða svarað símtölum með því að nota tengdan
aukabúnað. Tækið þitt getur aðeins hringt í neyðarnúmer
sem eru forrituð í tækið þitt.
Óvirkja ytri SIM-ham — Ýttu á rofann og veldu
Loka ytri
SIM
.