Textaritun
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
33
1 — Loka - Loka skjánum með takkaborðinu.
2 — Innsláttarvalmynd - Opna valmynd með valkostum fyrir
snertiinnslátt og skipanir eins og
Tungumál texta
.
3 — Takkaborð á skjá
4 — Shift og hástafalás - Til að slá inn hástaf þegar skrifað er
með lágstöfum, eða öfugt, skaltu velja takkann áður en
stafurinn er sleginn inn. Til að stilla á hástafalás skaltu velja
takkann tvisvar. Strik undir takkanum sýnir að hástafalás sé
virkur.
5 — Bókstafir - Slá inn bókstafi.
6 — Tölur og tákn - Slá inn tölur og algenga sérstafi.
7 — Kommur yfir stöfum - Velja kommur yfir stöfum.
8 — Bilstika - Til að setja inn bil.
9 — Örvar - Færa bendilinn afturábak eða áfram.
10 — Bakktakki - Eyða staf sem sleginn hefur verið inn.
11 — Færslutakki - Til að færa bendilinn yfir í næstu línu eða
innsláttarreit. Viðbótaraðgerðir fara eftir því hvað verið er að
gera (t.d. í veffangsreit vafrans virkar hann sem "Go"-
hnappur).
12 — Innsláttaraðferð - Velja innsláttaraðferð. Þegar smellt
er á hlut lokast innsláttarskjárinn og sá sem var valinn opnast.