Nokia 5800 XpressMusic - Flýtiritun

background image

Flýtiritun

Þegar orð er slegið inn í flýtiritun er einn talnatakki valinn

fyrir hvern staf í orðinu. Í flýtiritun er notuð innbyggð

orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í. Flýtiritun

er ekki í boði fyrir öll tungumál.
1. Kveikt er á flýtiritun fyrir alla ritla tækisins með því að velja

>

Kveikja á flýtiritun

.

2. Skrifaðu orð. Veldu t.d. 6 fyrir N, 6 fyrir o, 5 fyrir k, 4 fyrir

i og 2 fyrir a til að skrifa „Nokia“ þegar enska orðabókin

er valin.
Orðið sem stungið er upp á breytist eftir hvern staf sem

er valinn.

3. Ef ekki kemur upp rétt orð velurðu * endurtekið þar til rétt

niðurstaða birtist. Ef orðið er ekki í orðabókinni velurðu

Stafa

, slærð orðið inn á venjulegan hátt og velur síðan

Í

lagi

.

Ef ? birtist fyrir aftan orðið er það ekki að finna í

orðabókinni. Orði er bætt inn í orðabókina með því að

velja *, slá orðið inn á venjulegan hátt og velja síðan

Í

lagi

.

4. Til að slá inn punkt velurðu *.
5. Til að setja inn bil velurðu 0.