Sýndartakkaborð
Hægt er að nota sýndartakkaborðið (
Bók- og
tölustafatakkab.
) til að slá inn stafi eins og á venjulegum
síma sem er með tölustafi á tökkunum.
1 — Loka - Loka sýndarlyklaborðinu (
Bók- og
tölustafatakkab.
).
2 — Innsláttarvalmynd - Til að opna
snertiinnsláttarvalmyndina sem er með skipunum eins og
Kveikja á flýtiritun
og
Tungumál texta
.
3 — Vísir fyrir textainnslátt - Opna sprettiglugga þar sem
hægt er að kveikja og slökkva á sjálfvirkri textaritun, skipta
milli há- og lágstafa eða skipta milli bókstafa og tölustafa.
4 — Innsláttaraðferð - Opna sprettiglugga þar sem hægt er
að velja á milli innsláttaraðferða. Þegar pikkað er á aðferð
lokast innsláttarskjárinn og sá sem var valinn opnast.
Tiltækar innsláttaraðferðir eru breytilegar eftir því hvort
sjálfvirkur innsláttur (skynjarastillingar) er virkur eða ekki.
5 — Örvatakkar - Flettu til vinstri eða hægri.
6 — Bakktakki
7 — Númer
8 — Stjarna - Til að opna töflu með sértáknum.
9 — Skiptitakki - Skipta milli hástafa og lágstafa, kveikja og
slökkva á sjálfvirkri textaritun og skipta milli bókstafa og
tölustafa.