Endurvinnsla
Að loknum endingartíma símans má endurnýta
allan efnivið hans sem efni og orku. Til að tryggja
að rétt sé staðið að losun og endurvinnslu tekur
Nokia, ásamt samstarfsaðilum sínum, þátt í
áætlun sem nefnist We:recycle.
Endurvinna skal pakkningar og
notandahandbækur á næstu endurvinnslustöð.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni,
rafhlöðunni, bæklingnum eða umbúðunum táknar að
fara verður með allan rafbúnað og rafeindabúnað,
rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að
Umhverfisvernd
© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.
102
líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan
Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með
heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar um umhverfiseiginleika
símans eru á www.nokia.com/ecodeclaration.