Nokia 5800 XpressMusic - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem kann að vera

sprengihætta. Farðu eftir leiðbeiningum sem gilda hverju

sinni. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu

eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva

skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo sem við

eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir í

eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing

eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að

sprengja. Svæði þar sem kann að vera sprengihætta eru

oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru svæði þar

sem ráð gæti verið að slökkva á vél bifreiðar, í farrýmum

skipa, í efnageymslum eða við efnaflutninga og þar sem efni

eða agnir, s.s. ryk, sót eða málmduft gæti verið í lofti. Þú ættir

að leita upplýsinga hjá framleiðendum farartækja sem nota

jarðgas (líkt og própan eða bútan) til að ákvarða hvort hægt

sé að nota þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.

Vöru- og öryggisupplýsingar

© 2011 Nokia. Öll réttindi áskilin.

106